Notendaskilmálar

Lýsing

Plúsinn er afþreyingar og skemmtiapp í eigu Sýnar ehf. kt.470905-1740, sem hefur einnig vefsvæði undir léninu plusinn.is (hér eftir verður hvoru tveggja skýrt sem Plúsinn). Hér á eftir fylgja notendaskilmálar Plússins. Öllum stendur til boða að sækja Plúsinn og nota, ekki aðeins þeim sem eru viðskiptavinir hjá Sýn. Aðeins er óskað eftir upplýsingum um notendur þegar notandi vill fá að taka þátt í leikjum á okkar vegum. Óskað er þá eftir upplýsingum svo sem netfangi, símanúmar, og nafni. Með því að skrá þig fyrir þjónustunni og samþykkja skilmála Plússins, samþykkir þú að veita Plússnum þær upplýsingar sem þörf er á.

Gögn sem við söfnum

Til þess að veita þjónustu Plússins söfnum við nafni, kennitölu og símanúmeri. Auk þess kann þjónustan að biðja þig um frekari upplýsingar eins og kyn, póstnúmer, aldur o. fl. . Einnig kann Plúsinn að biðja um upplýsingar um staðsetningu ef notuð er sérstök þjónusta innan appsins, en þér er frjálst að velja að hafna þeim beiðnum. Plúsinn safnar einnig gögnum sem ná um hegðun notenda í appinu en undir það fellur m.a. hvaðan og hvaða virkni notandi notar mest, hversu oft notandi opnar Plúsinn og notkun innan apps. Þar að auki safnar Plúsinn upplýsingum um vafra, símategund, stýrikerfi. Öll samskipti við Plúsinn fara í gegnum tölvupóst á netfangið info@plusinn.is og eru þau einnig geymd.

Notkun upplýsinga

Við söfnum, geymum og greinum ofangreind gögn í eftirfarandi tilgangi.

Veita þjónustu Plússins

Til þess að veita þjónustu í gengum Plúsinn er nauðsynlegt að safna gögnum (sjá kafla Gögn sem við söfnum). Plúsinn notar upplýsingar um hegðun notenda innan appsins til þess að greina almenn hegðunarmynstur notenda í þeim tilgangi að gera þjónustur Plússins enn betri og notendavænni.

Deila upplýsingum

Plúsinn kann að deila ópersónugreinanlegri tölfræði og upplýsingum með öðrum notendum Plússins. Samantektir þessara greininga af hópum notenda eru þó ekki á nokkurn hátt persónugreinanlegar.

Aðgangsstýring upplýsinga

Aðgengi starfsfólks Plússins að gagnagrunnum upplýsinga um notendur er takmarkað og veltur aðgengi hvers starfsgildis af upplýsingaþörf viðeigandi starfs.

Allir starfsmenn Plússins eru bundnir þagnarskyldu um allt sem þeir kunna að verða áskynja um notendur.

Vefurinn og gagnagrunnar hans eru hýstir í læstu og vöktuðu herbergi hjá öryggisvottuðum hýsingaraðila. Öll samskipti eru dulkóðuð, bæði við notendur og viðskiptavini (auðkennt í vafranum með „https“ forskeyti á undan vefslóðinni og mynd af hengilás).

Plúsinn mun meðhöndla allar upplýsingar notenda sem persónuupplýsingar og heitir því að starfa að öllu leyti í samræmi við íslensk lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Stjórnun upplýsinga

Notendur hafa rétt að óska eftir sínum upplýsingum og að biðja um að láta eyða þeim.

Samskipti við notendur

Það er Plúsinum mikilvægt að geta átt í opnum samskiptum við notendur. Bæði til þess að upplýsa um uppfærslur og nýjar þjónustur en einnig til þess að taka við ábendingum og gagnrýni sem varða þætti þjónustunnar sem krefjast umbóta.

Ábyrgðir viðskiptavina

Almennt

Notendur Plússins teljast hafa samþykkt greiðsluskilmála Plússins eftir að hafa samþykkt notendaskilmála, setja inn tilboð og/eða bæta við tilboði fyrir sinn notendahóp.

Auglýsingar

Í sumum tilfellum kann Plúsinn að bjóða auglýsendum að auglýsa innan appsins. Gæti þá auglýsingin aðeins birtist hjá þeim notendum sem teljast líklegir, út frá neyslumynstri sínu, til að hafa áhuga á auglýsingunni.

Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna Plússins

Plúsinum er umhugað um persónuvernd og leggur ríka áherslu á öryggi og ábyrga meðferð persónuupplýsinga og að ávallt sé unnið með þær í samræmi við lög og reglur. Með persónuverndarstefnu þessari viljum við gera þér grein fyrir því hvernig við söfnum, geymum og vinnum persónuupplýsingarnar þínar þegar þú notar Plúsinn.

Við vinnum aðeins með persónuupplýsingar í lögmætum tilgangi og samkvæmt upplýstu samþykki.

Umfang

Stefnan gildir um allar vinnslur persónuupplýsinga, nær til starfsfólks, verktaka og alla þá sem koma að vinnslu persónuupplýsinga fyrir hönd Plússins.

Hvað eru persónuupplýsingar

Hugtakið persónuupplýsingar tekur til allra upplýsinga sem tengja má við einstakling hvort sem það er beint eða óbeint.  Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar. Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónugreinanlegar upplýsingar, hvort sem er handvirkt eða rafrænt.

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og geymum

Almennt er það markmið okkar hjá Plúsnum að geyma og vinna með eins lítið af persónuupplýsingum og mögulegt er. Það er aðeins gert til að við getum veitt þér þá þjónustu sem þú ert skráður fyrir. Til þess söfnum við eftirfarandi upplýsingum:

  • Grunnupplýsingum um þig, nafn, kennitala, símanúmer, netfang, kyn og búsetu.
  • Tæknilegum upplýsingum,  s.s. búnaður, tæki, IP tölur, hvaða vafra eða app þú notar til að tengjast okkur og hvaða virkni hentar þér best.
  • Samskiptaupplýsingum, öll samskipti þín við okkur s.s. spurningar, ábendingar 
  • Hegðunar og notkunarupplýsingar, persónulegt neyslumynstur þitt, notkun á þjónustu og vörum 

Í hvaða tilgangi notum við persónuupplýsingarnar

Plúsinn greinir og vinnur persónuupplýsingar með skýrum og yfirlýstum tilgangi líkt og lög um persónuvernd, önnur lög og reglur gera kröfur til. Við notum persónuupplýsingar þínar aðeins til að veita þér umbeiðna þjónustu meðal annars til að:

  • Plúsinn geti veitt þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir
  • Svara fyrirspurnum og ábendingum frá þér
  • Greina notkun þína á Plúsnum til þess að geta bætt og þróað þjónustuna enn frekar t.d. með því að finna heppilegt tilboð frá fyrirtækjum/tilboðsgjöfum
  • Skilja betur hvaða þættir þjónustunnar nýtist þér og öðrum best, greina viðbrögð við nýjum og/eða uppfærðum vörum.
  • Senda þér með tölvupósti eða tilkynningar í gegnum Plúsinn um nýjar vörur, uppfærslur, ný tilboð sérsniðin fyrir þig eða aðrar mikilvægar breytingar.

Auk þess sem hér kemur fram fyrir ofan tökum við saman ópersónugreinanlegar markaðsupplýsingar sem við seljum til fyrirtækja og eða birtum í þeim tilgangi að upplýsa almenning um stöðuna á Íslenska markaðnum.  Þú getur alltaf afskráð þig svo þú fáir ekki tölvupóst frá okkur.

Varðveisla gagna og upplýsingaöryggi

Við leggjum mikla áherslu á öryggi persónuupplýsinga þinna og erum bundin trúnaði og þagnaskyldu um þær. Í gildi eru reglur er varða öryggi t.d. um aðgangsstýringar, kerfisins og eru öll samskipti og gagngrunnur Plússins eru dulkóðaður.

Verði öryggisbrestur verði farið með slík mál í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Stjórn á þínum upplýsingum

Þú átt rétt á að fá aðgang og í ákveðnum tilfellum afhent afrit af persónuupplýsingum sem þú hefur afhent okkur og við vinnum með. Jafnframt hefur þú rétt á að óska eftir leiðréttingum á röngum persónuupplýsingum ef slíkt kemur í ljós.

Samningar við þriðja aðila

Plúsinn deilir ekki persónuupplýsingum þínum til þriðja aðila utan Sýnar. Einu upplýsingarnar sem við deilum eru tölfræðilegar upplýsingar sem byggja á samantekt á hópum til að veita þér umbeðna þjónustu eða til að bæta þjónustuna við þig.

Upplýsingaöryggisstefna Plússins

Tilgangur og umfang

Tilgangur upplýsingaöryggisstefnu Plússins er að tryggja að sem best öryggi upplýsinga þannig að þær nýtist á skilvirkan og hagkvæman hátt fyrir viðskiptavini og rekstur Plússins.

Umfang

Upplýsingaöryggisstefnan nær til allra starfsmanna og þeirra aðila sem skrá og meðhöndla upplýsingar viðskiptavina, fyrirtækja, tilboðsgjafa og vildarhópa. Stefnan tekur jafnframt til gagna í eigu Plússins sem hýst eru hjá þriðja aðila.

Stefna

  1. Plúsinn gæti þess að tryggja sem best öryggi upplýsinga hverju sinni.
  2. Plúsinn skuldbindir sig til að fylgja ávallt þeim lögum og reglum sem gilda um stjórnun upplýsingaöryggis og meðferð upplýsinga þ.m.t vinnslu persónuupplýsinga.
  3. Stefna þessi er bindandi fyrir starfsfólk sem kemur að vinnslu með upplýsingar um Plúsinn, sem og þriðja aðila. Allir aðilar sem vinna fyrir Plúsinn eru skuldbundnir til að vernda upplýsingar Plússins í samræmi við lög og reglur.
  4. Plúsinn stuðlar að virkri öryggisvitund starfsmanna og þriðja aðila.
  5. Plúsinn gætir að tryggja leynd, réttleika og tiltækileika gagna og kerfa.
  6. Plúsinn mun endurskoða þessa stefnu eins oft og þurfa þykir, þó ekki sjaldnar en einu sinni á ári.

Leiðir

  1. Reglulega er farið yfir ábendingar eða atvik sem tilkynnt eru sem og breytingar á lögum, reglum til að tryggja stöðugar umbætur.
  2. Plúsinn tryggir að starfsfólk og allir þeir sem vinna fyrir Plúsinn fái ásættanlega þjálfun og fræðslu varðandi upplýsingaöryggi til að tryggja að öllum sé ljós ábyrgð sín.
  3. Plúsinn tryggir að allar stefnur og reglur séu rýndar reglulega til tryggja stöðugar umbætur.