Íslenskt kassakerfi
Kassakerfi sem einfaldar reksturinn.
Kassakerfi, birgðir, starfsfólk og rekstur á einum stað. Virkar á spjaldtölvu, síma og tölvu.

- Engin binding
- Ótakmarkaðir notendur
- Íslensk aðstoð
Kassakerfi sem einfaldar reksturinn
Eitt kerfi í stað margra. Kassinn, lagerinn, starfsfólkið og tölurnar tala saman.
Afgreiðsluskjárinn
Nýtt starfsfólk lærir á kassann á nokkrum mínútum.
Allt á einum skjá
Vörur, karfa og greiðsla án þess að skipta um glugga.
Birgðir við hverja vöru
Starfsfólk sér strax hvað er til á lager.
Alltaf samstillt
Sala í kassanum birtist samstundis í stjórnborðinu.

Kassakerfi
Hröð afgreiðsla á snertiskjá með stórum vöruhnöppum og flokkum.
- Strikamerki með skanna eða myndavél
- Teya-posi tengdur beint við kassann
- Kvittun prentuð eða í tölvupósti
Birgðakerfi
Birgðastaðan uppfærist við hverja sölu, í öllum starfsstöðvum.
- Lagertalning í símanum
- Innflutningur úr Excel eða CSV
- Viðvörun þegar vara er að klárast
Starfsmannastjórnun
Hver starfsmaður sér aðeins það sem hann þarf að sjá.
- Tilbúin hlutverk og sérsniðnar heimildir
- Vaktaplan fyrir vikuna
- Starfsfólki boðið með tölvupósti
Stimpilklukka
Starfsfólk stimplar sig inn og út með PIN-númeri.
- Yfirlit yfir vinnutíma
- Tengt beint við launakerfið
- Leiðréttingar með samþykki
Bókanir
Gestir bóka borð á netinu og bókunin birtist í kassanum.
- Borð frátekin sjálfkrafa
- Dagsyfirlit bókana í kassanum
- Engar tvíbókanir á sama borð
Borð og pantanir
Opnir reikningar á borð, frá fyrstu pöntun til greiðslu.
- Salarteikning með borðum
- Skipting reiknings á marga vegu
- Eldhússkjár og QR-pantanir
Söluskýrslur
Dagssala, uppgjör og framlegð í einu yfirliti.
- Sala eftir vöru, starfsmanni og tíma
- Dagsuppgjör kassans
- Útflutningur í PDF og Excel
Samþættingar
Plúsinn talar við kerfin sem þú notar nú þegar.
- Teya greiðsluposar
- Pantanir frá Takeaway.is
- Bókhald og ársuppgjör
Fyrir verslanir, veitingastaði og fleiri
Hentar jafnt litlum fyrirtækjum og keðjum með margar starfsstöðvar.
Verslanir
Hröð afgreiðsla við kassann og birgðir sem passa alltaf við hilluna.
- Strikamerkjaskönnun
- Lagertalning í síma
- Innkaup og birgðaviðvaranir
Hentar: Matvöruverslanir, sjoppur, fata-, skó- og sérverslanir
Veitingastaðir og kaffihús
Frá borði til eldhúss og aftur til baka, án pappírsmiða.
- Salarteikning og opnir reikningar
- Eldhússkjár og áfangar
- QR-pantanir og skipting reiknings
Hentar: Veitingastaðir, kaffihús, barir og skyndibitastaðir
Þjónustufyrirtæki
Bókanir, afgreiðsla og vinnutími starfsfólks á sama stað.
- Bókanir á netinu
- Sala á þjónustu og vörum
- Stimpilklukka og vaktaplan
Hentar: Hárgreiðslu- og snyrtistofur og önnur þjónusta
Fleiri starfsstöðvar
Eitt kerfi fyrir allar verslanir, með yfirsýn yfir heildina.
- Birgðir eftir starfsstöð
- Sameiginlegt söluyfirlit
- Heimildir eftir starfsstöð
Hentar: Keðjur og fyrirtæki með margar verslanir
Algengar spurningar
Svör um kassakerfið, búnað og virkni.
Hvað er kassakerfi?
Kassakerfi (POS-kerfi) er hugbúnaðurinn sem notaður er við afgreiðslu: það skráir sölu, tekur við greiðslum, gefur út kvittanir og heldur utan um vörur og birgðir. Plúsinn tengir þetta saman við starfsfólk, tímaskráningu og skýrslur.
Er Plúsinn einfaldur í notkun?
Já. Afgreiðsluskjárinn er hannaður fyrir snertiskjá með stórum hnöppum og vöruflokkum, svo nýtt starfsfólk lærir á kassann á nokkrum mínútum.
Get ég notað kassakerfið í spjaldtölvu eða síma?
Já. Plúsinn keyrir í vafra og virkar á spjaldtölvu, síma og tölvu. Ekki þarf að setja upp sérstakan hugbúnað eða kaupa dýran kassabúnað.
Hentar Plúsinn veitingastöðum?
Já. Plúsinn er með borðakerfi og salarteikningu, opna reikninga á borð, skiptingu reiknings eftir vörum, jafnt eða eftir upphæð, eldhússkjá og QR-pantanir frá borði.
Get ég stjórnað mörgum verslunum?
Já. Hægt er að reka fleiri en eina starfsstöð í sama kerfi, með birgðastöðu eftir starfsstöðvum og sameiginlegu yfirliti yfir sölu.
Er birgðakerfi innifalið?
Já. Birgðastjórnun er innifalin: birgðastaða í rauntíma, vörutalning, innkaup og viðvaranir þegar birgðir eru að klárast.
Er hægt að skanna strikamerki?
Já. Hægt er að skanna EAN-strikamerki með myndavél síma eða spjaldtölvu, bæði við afgreiðslu og lagertalningu.
Er hægt að tengja greiðsluposa?
Já. Plúsinn tengist Teya-posum þannig að upphæðin fer beint á posann og salan klárast sjálfkrafa þegar greiðslan er samþykkt.
Er stimpilklukka í Plúsnum?
Já. Starfsfólk stimplar sig inn og út með PIN-númeri og stjórnendur sjá vinnutíma, vaktaplan og grunn fyrir launaútreikning.
Geta starfsmenn haft mismunandi aðgang?
Já. Hvert hlutverk fær sínar heimildir, til dæmis afgreiðsla, bókari, endurskoðandi eða eigandi, og hægt er að sérsníða aðgang hvers starfsmanns.
Er hægt að flytja vörur inn í kerfið?
Já. Vörulista má flytja inn úr Excel, CSV, TSV, JSON eða XML skrá, svo ekki þarf að skrá hverja vöru handvirkt.
Er Plúsinn íslenskt kassakerfi?
Já. Plúsinn er íslenskt kerfi, á íslensku, með íslenskum VSK-þrepum, kennitölum og aðstoð á íslensku.
Hvernig byrja ég að nota Plúsinn?
Þú stofnar aðgang á plusinn.is, skráir fyrirtækið og vörurnar og getur byrjað að selja strax í vafranum. Engin binding eða stofngjald.
